Heimskauts-
baugurinn
bíður þín
The Arctic Circle
WELCOMES YOU
Verið velkomin
Gistiheimilið okkar er staðsett í hjarta Grímseyjar rétt fyrir ofan höfnina. Húsið sjálft er á þremur hæðum, gistihúsið á þeim tveimur efstu en gallerí og kaffihús á þeirri neðstu.
Við höfum sex svefnherbergi með uppábúnum rúmum með hágæða-líni, tveimur koddum á gest, handklæði og þvottapoka.
Sameiginleg eldhúsaðstaða, stofa og baðherbergi er til staðar fyrir gesti. Við bjóðum ókeypis aðgang að þráðlausu neti. Barnarúm fyrir börn undir tveggja ára aldri er til boða án endurgjalds
Hvað á ég að gera í Grímsey?
Litla eyjan okkar er stútful af stórskemmtilegum leyndarmálum sem bíða þess að þú uppgötvir þau.
Heimskauts-
baugurinn
Norðurheimskautsbaugurinn liggur í gegnum Grímsey og þú getur gengið yfir hann.
Sundlaugin
Sundlaugin í Grímsey er opin á mán, þri og mið frá 20:00 til 21:30 og laugardaga frá 14:00 til 16:00.
Gallerí oG
Kaffihús
Á neðstu hæð Gistihússins rekum við lítið kaffihús og handverksgallerí með handavinnu frá Grimsey.
Göngu-slóðar
Um eyjuna liggja margir fallegir gönguslóðar. Hægt er að kaupa kort í galleríinu.
Fugla-skoðun
Grímsey er þekkt fyrir þær þúsundir lunda sem byggja eyjuna. Allan ársins hring eru hér tugir fuglategunda sem eru mjög aðgengilegar fyrir myndatökur.
Sumar-sólstöður
Sumarsólstöður eru í kring um miðnætti 21. júní og þá sest sólin ekki. Algjörlega magnað sjónarspil.
norður-ljósin
Norðurljós eru algeng yfir Grímsey frá október og fram í mars.
KRÍAN RESTAURANT
Sumaropnun frá kl. 12:00 til 21:00.